27.04.2026
UPPFÆRT 27.04: Loka þarf fyrir hitaveitu frá Hafnargötu 10 og úteftir í skamma stund á framkvæmdartímanum.
-------------------------------
Vegna tengivinnu við gamla ríkið þarf að loka Hafnargötu frá kl. 10 á mánudagskvöld og fram eftir kvöldi. Ekki er möguleiki á hjáleið og verða þeir sem eiga erindi utan við Hafnargötu 11 að gera ráðstafanir vegna þess. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
27.04.2026
HEF veitur stefna á borun 400 m borholu við Dagmálalæk en markmiðið er að kanna dýpri jarðlög og vonast er eftir að finna varmagjafa fyrir miðlæga varmadælu fyrir kyndistöð fjarvarmaveitunnar. Undirbúningur hefst í vikunni en Borbræður munu koma með borinn sinn Árna í verkið. Borframkvæmdinni fylgir hávaði en gert er ráð fyrir að borun taki 2-4 vikur. Unnið verður frá 8-19 virka daga.
20.04.2026
Til áréttingar þess að nú er regluleg hreinsun rotþróa í Múlaþingi gerð þriðja hvert ár.
17.04.2026
Á næstu dögum hefst átak í uppsetningu snjallmæla á Egilsstöðum, þar sem eldri hitaveitumælum verður skipt út fyrir snjallmæla. Bænum hefur verið skipt upp í svæði og verður haft samband við íbúa þeirra svæða sem næst verða í röðinni.
16.04.2026
HEF veitur, í samstarfi við Múlaþing og RARIK, eru að hefja umfangsmiklar framkvæmdir við endurbyggingu og endurnýjun á götum og veitulögnum í Markarlandi á Djúpavogi.
08.04.2026
HEF veitur bjóða húseigendum á köldum svæðum í Múlaþingi, utan veitusvæðis HEF, ráðgjafarþjónustu varðandi uppsetningu varmadælukerfa. Heimsóknir verða skipulagðar á vormánuðum 2026.
30.01.2026
Við uppfærslu bókhaldskerfis veitunnar um mánaðamót október-nóvember s.l. urðu þau leiðu mistök að rúmmetraverð heita vatnsins færðist ekki rétt.
30.01.2026
Vegna lekaleitar í dreifikerfi fjarmvarmaveitu verður lokað fyrir heitt vatn norðanmegin við Fjarðará frá kl 9-12 mánudaginn 2.febrúar.
26.01.2026
Vegna lekaleitar má búast við truflunum á afhendingu á heitu vatni í vikunni.
16.01.2026
HEF veitur óska eftir tilboðum í verkið „Hreinsistöð við Melshorn – Áfangi I – Uppsetning og tenging búnaðar“