Stefnur HEF veitna

Öryggisstefna HEF veitna

Öryggi er hornsteinn starfsemi HEF veitna, þar sem við leggjum áherslu á að skapa öruggt og heilsusamlegt
vinnuumhverfi fyrir alla. Við leggjum ríka áherslu á öryggi og vinnuvernd fyrir starfsmenn, verktaka og
samfélagið sem við þjónum. Við viljum skapa öruggt, snyrtilegt og slysalaust vinnuumhverfi, þar sem
allir taka ábyrgð á öryggi, fylgja verklagsreglum og stuðla að bættu vinnulagi. Öryggismenning er hluti af
daglegum rekstri. Við leitumst við að tryggja að starfsemin uppfylli gildandi öryggisstaðla og -reglur.

Lestu nánar um markmið okkar í öryggismálum

Umhverfisstefna HEF veitna

Við leggjum áherslu á vistvænar lausnir og skynsamlega og ábyrga nýtingu auðlinda til að lágmarka
umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærri þróun til framtíðar.

Lestu nánar um markmið okkar í umhverfismálum

Eigandastefna HEF veitna

 Múlaþing er eigandi HEF veitna ehf. sem er B-hluta fyrirtæki sveitarfélagsins. HEF starfrækir verkefni sem sveitarstjórn hefur falið félaginu að vinna að. Verkefni falla ýmist undir skilgreiningu þess að vera lögákveðin og ólögákveðin verkefni sveitarfélaga og felast í uppbyggingu, viðahaldi og rekstri mikilvægra innviða og varða hátt hlutfall af heildarfjárhag sveitarfélagsins.

Eigandastefnu HEF veitna ehf má lesa hér