29.05.2026
UPPFÆRT: 3.6.2026 - Vegna óvæntra tafa á verkinu verður Garðarsvegur lokaður á fimmtudag. Sömu hjáleiðir og áður eru í gildi.
Vegna framkvæmda á gatnamótum Garðarsvegs og Lækjargötu á Seyðisfirði verður jarðvinna og tímabundin lokun á Garðarsvegi (sjá rautt á mynd) mánudag og þriðjudag 1-2. Júní.
Íbúum og öðrum vegfarendum er bent á að nota hjáleið um Múlaveg á meðan lokun varir (gult á mynd).
27.05.2026
Uppfært 27.5.2026: HEF veitur stefna á borun 400 m borholu við Dagmálalæk en markmiðið er að kanna dýpri jarðlög og vonast er eftir að finna varmagjafa fyrir miðlæga varmadælu fyrir kyndistöð fjarvarmaveitunnar. Undirbúningur hefst í vikunni en Borbræður munu koma með borinn sinn Árna í verkið. Borframkvæmdinni fylgir hávaði en gert er ráð fyrir að borun taki 2-4 vikur. Unnið verður frá 8-19 virka daga.
22.05.2026
Farið verður í framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Eiðum á miðvikudagskvöldinu 27. maí milli 23:00 og 08:00 morguninn eftir. Það er fyrirséð að það verði truflanir á afhendingu á neysluvatni á Eiðum á meðan þessu stendur.
18.05.2026
Vegna lekaviðgerðar verða truflanir á afhendingu á heitu vatni á Seyðisfirði þriðjudaginn 21. maí frá kl. 10 og frameftir degi