Uppfært 15.10.16 kl 10:00
Nú er borun fjögurra hola lokið og næst verður farið í borun við sparkhöllina í Bakkagerði. Sú borun hefst á morgun föstudag og stendur yfir um helgina. Þar verður boruð 150 m hola og eftir mælingar kann að vera að hún nýtist fyrir varmadælu ef vel heppnast. Beðist er velvirðingar á ónæðinu á meðan borun stendur.

Borun BOR-04 við Háhamar
Uppfært 12.10.16 kl 15:00
Boranir ganga nú vel eftir strembna byrjun og er þriðju holunni lokið nú í dag. Sú hola var boruð ofan við Grund (60 m). Áður voru holur við Desjarmýri (100 m) og við Jökulsá (90 m) boraðar. Boranir halda áfram í vikunni.
Stefnt er á að bora holu í Bakkagerði innan við sparkhöllina og verður reynt að gera það um helgi, ekki ljóst í dag havað helgi það verður. Íbúar eru beðnir velvirðingar á ónæðinu sem kann að hljótast af því.
Upprunaleg frétt:
Nú í dag eru boranir að hefjast í jarðhitaleitarátaki HEF veitna á Borgarfirði en stefnt er á að bora 5-6 hitastigulsholur í firðinum. Ein hola verður boruð við sparkhöllina í þorpinu og mun það valda einhverri hávaðamengun á meðan því stendur. Reiknað er með að hver hola taki 1-3 daga í borun.
Framgangur verksins ræðst að miklu leita af veðri og vindum og getur óhagstæð vindátt eða bleyta erfiðað verkið.
Fréttin verður uppfærð á næstu dögum og vikum.
