Lokað fyrir kalt vatn

Vatnslokun – Ránargata, tenging nýrrar vatnslagnar

Þriðjudaginn 20. október verður vatnslaust á eftirtöldum svæðum vegna tengingar nýrrar vatnslagnar:

  • Ránargata, frá tjaldsvæðisafleggjaranum og út eftir
  • Fjarðargata, öll gatan

Áætlað er að vatnið verði tekið af um kl. 10:00 og að það verði komið aftur á um kl. 18:00. Tímasetningar geta breyst ef eitthvað óvænt kemur upp.

Við bendum íbúum á að hafa krana lokaða á meðan og láta vatnið renna í smástund þegar það kemst aftur á, þar sem loft eða grugg getur verið í lögnum fyrst um sinn.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.