Fréttir

UPPFÆRT: Neysluvatn öruggt. Gerlamengun í neysluvatni á Borgarfirði.

HAUST tók sýni á þriðjudaginn og standast þau gæðakröfur. Því er öllum kröfum um suðu á neysluvatni aflétt og fólki óhætt að neyta vatnsins sem áður. Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á neysluvatni á Borgarfirði eystra í síðustu viku greindust e.coli gerlar í sýninu.

Lokað fyrir kalt vatn á Seyðisfirði á fimmtudagskvöld

28.08.2026 - 08:45 Tengingu á nýrri stofnlögn í Ránargötu lauk um 4.30 í nótt Vegna tengingar á nýrri stofnlögn í Ránargötu þarf að loka fyrir kalt vatn í hluta Seyðisfjarðar annað kvöld, Fimmtudag. Á mynd með fréttinni má sjá hvar verður vatnslaust. Gert er ráð fyrir að tenging hefjist um kl. 22:00 og standi fram eftir nóttu.

Truflanir á afhendingu á köldu vatni á Borgarfirði næstkomandi mánudag.

Vegna vinnu við nýja stofnlögn má gera ráð fyrir að truflanir verði á afhendingu á köldu vatni næstkomandi mánudag. Þetta getur verið allt frá litlum þrístingi og upp í algert vatnsleysi um tíma. Vinna hefst um kl 10 og stendur allan daginn.

Lokun Háafells í Fellabæ

Vegna framkvæmda við Lagarfell verður nauðsynlegt að loka aðgengi að Háafelli frá og með 13. Ágúst. Gert er ráð fyrir að lokunin vari í 7-10 daga. Íbúar eru beðnir um að gera ráðstafanir til þess að bifreiðar, eftirvagnar og aðrir hlutir sem þurfa að vera aðgengilegir utan götunar lokist ekki inni. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.