Á morgun miðvikudag og fimmtudag verður farið í framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Borgarfirði. Þetta er liður í umbótum á stýringum og virkni vatnsveitunnar sem hafa verið í gangi síðustu misseri. Markmiðið er að skipta um yfirfallsrör svo hægt sé að klára breytingar á lögnum og á lokahúsinu við tankinn. Að framkvæmdum loknum verður tankurinn þrifinn. Á meðan þessu stendur verður tankurinn tæmdur og vatnsveitan á framhjáhlaupi. Því má búast við truflunum á afhendingu á vatni frá því seinnipartinn á morgun og til fimmtudagskvölds.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu sem það kann að valda.