Fréttir

Uppfært 29.10 kl. 14:52 - Framkvæmdir og þrif á vatnstanki Borgarfirði

UPPFÆRT 29.10  KL. 14:50 Verkinu miðar hægar en gert var ráð fyrir og geta íbúar því átt von á truflanir í vatnsveitu vari fram á föstudag.  Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að skapa. ----------------------------- Á morgun miðvikudag og fimmtudag verður farið í framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Borgarfirði. Því má búast við truflunum á afhendingu á vatni frá því seinnipartinn á morgun og til fimmtudagskvölds.

Borunum lokið í Borgarfirði

Fyrir helgi lauk borunum í Borgarfirði en boraðar voru 6 holur, 60 - 150 m djúpar.

Lagarfell lokað á miðvikudag og fimmtudag

Vegna malbikunarframkvæmda verður Lagarfell í Fellabæ lokað á miðvikudag og fimmtudag eins og myndin sýnir. Fólki er bent á að aka Einhleyping á meðan framkvæmd stendur. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að gera ráðstafanir til að lágmarka umferð þessa daga. Þeir sem nauðsýnlega þurfa að komast eru beðnir um að aka varlega og sýna aðgát.

Seyðisfjörður: Lokað fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu

Frétt Uppfærð  19 október kl. 11 Lokað verður fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu. Miðvikudaginn 21. október Áætlað er að vatnið verði tekið af um kl. 10:00 og að það verði komið aftur á um kl. 18:00. Tímasetningar geta breyst ef eitthvað óvænt kemur upp.

Lokað fyrir vatn í Hömrum Egilsstöðum vegna tengivinnu

Vegna nýrrar tengingar í Hömrum þarf að loka fyrir vatn í Hömrum 8 - 23 á milli 14 og 16 í dag.

Uppfært 05.10 - Vatnslaust vegna rofs og lokað fyrir kalt vatn í og nokkrum Brúnum í Fellabæ 15.09.

ATH vatnslaust vegna rosf í hluta Fellabæjar. Vegna tengivinnu þarf að loka fyrir kalt vatn í Ásbrún frá 11-12 í dag og í Selbrún og Dalbrún frá 15-18 síðar í dag.  Beðist er velvirðingar á ónæðinu. Sjá mynd með frétt