29.04.2024
Enn mælist mengun í neysluvatni við Strandarveg á Seyðisfirði eftir sýnatöku sl. föstudag. Notendur í húsum við Strandarveg þurfa því enn að sjóða vatnið. Pípari hefur farið yfir hitakúta á svæðinu en notendum er bent á að hafa samband við HEF veitur ef þeir telja sig þurfa frekari ráðleggingar.
26.04.2024
Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) hefur staðfest mengun í neysluvatni við Strandarveg á Seyðisfirði. Íbúar og starfsfólk fyrirtækja er beðið um að sjóða neysluvatn.
24.04.2024
Mengun barst inn í neysluvatnskerfið á Seyðisfirði.
Talið er að mengunin sé bundin við Strandarveg. Að tilmælum Heilbrigðiseftirlitsins skulu íbúar og eigendur atvinnuhúsnæðis á Strandarvegi sjóða allt neysluvatn þar til staðfest hefur verið að mengun sé ekki lengur í vatninu.
16.04.2024
Borun tveggja tilraunahola til neysluvatnsöflunar í eyrar Búlandsár lauk í síðustu viku og er ekki annað að sjá en að útkoman sé góð.
11.04.2024
Áætlað er að tæma rotþrær í Jökuldal, Jökulsárhlíð, Möðrudal og Fellum á næstu mánuðum. HEF veitur standa fyrir losun á 3ja ára fresti, komi til þess að losa þurfi rotþrær utan þess tíma ber viðkomandi allan kostnað af því en þessi losun verður samkvæmt gjaldskrá HEF veitna.
10.04.2024
Ársfundur Samorku, sem HEF veitur er aðili að, var haldinn þann 20. mars í Norðurljósum, Hörpu. Fundurinn í ár bar yfirskriftina Ómissandi innviðir og var kastljósinu beint að virði orku- og veituinnviða fyrir heimilin, fyrir atvinnulífið og fyrir efnahagslífið meðal annars.
07.04.2024
Jarðborinn Trölli frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða (Ræktó) hefur á síðustu vikum og mánuðum borað eftir heitu vatni við Djúpavog. Nú er þessari borun lokið og umfjöllun lokið en hér var fjallað um gang mála.