Verktakar á vegum HEF veitna annast reglubundna hreinsun rotþróa og hreinsivirkja í Múlaþingi og sjá um flutning og meðhöndlun seyru. Reglubundin þjónusta er innifalin í árlegu rotþróargjaldi sem Múlaþing innheimtir með fasteignagjöldum.
Tíðni hreinsana
Hreinsun fer fram samkvæmt áætlun HEF veitna og tímasetning getur ráðist meðal annars af veðri og ástandi vega. Hreinsunin er gjaldfærð samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hreinsun fer fram þriðja hvert ár, snemmsumars, hverfaskipt eins og taflan sýnir:
| Hverfi | Síðast hreinsað | Næst hreinsað |
| Eiðaþinghá, Hjaltastaðaþinghá, Loðmundarfjörður | Júní 2026 | Sumar 2029 |
| Skriðdalur, Vellir, Berufjörður, Djúpivogur | Júlí 2025 | Sumar 2028 |
| Jökuldalur, Jökulsárhlíð, Fell, Hróarstunga, Borgarfjörður eystra, Seyðisfjörður | Júlí 2024 | Sumar 2027 |
Hreinsunaráætlun verður birt með fréttum og tilkynningum þegar nær dregur hreinsun á hverju svæði.
Aðgengi að hreinsivirkjum
Við reglubundna hreinsun þarf hreinsivirki að vera sýnilegt og aðgengilegt hreinsibíl. Tryggja þarf að þjónustuaðili komist óhindrað að hreinsivirkinu. Eigandi þarf að gera ráðstafanir ef aðgengi er takmarkað.
Eignarhald og ábyrgð
Eigendur bera ábyrgð á ástandi og viðhaldi hreinsivirkja, rotþróa, siturlagna og annarra fráveitulagna á sinni eign. Þeir þurfa að fylgjast með virkni kerfisins og óska eftir aukatæmingu ef þörf krefur. Heimsókn þjónustuverktaka á þriggja ára fresti kemur ekki í stað reglulegs eftirlits eiganda.
Eigendur skulu tryggja að hreinsivirki sé sýnilegt og aðkoma stórra bíla sé möguleg. Opna þarf læst hlið og fjarlægja hindranir áður en tæming fer fram. Ekki má leiða þakvatn, yfirborðsvatn, afrennsli hitakerfa eða vatn úr heitum pottum í rotþró.
Aukahreinsun og viðbótarþjónusta
Eigendur hreinsivirkja þurfa sjálfir að fylgjast með ástandi þeirra og lagnakerfa. Ef hreinsivirki fyllist milli reglulegra hreinsana, eða grunur er um að hreinsa þurfi fyrr, þarf að óska eftir aukahreinsun. Sama gildir um bilanir eða stíflur.
Aukahreinsanir og stíflulosanir er á kostnað eiganda og gjald fyrir þær fer eftir gildandi gjaldskrá. Hægt er að óska eftir hreinsun í síma 4 700 780, með tölvupósti á hef@hef.is eða í gegnum samskiptaform HEF.
Hvað þarf að koma fram í beiðni?
Til að HEF veitur geti afgreitt beiðnina fljótt er gott að taka fram:
Gott að hafa í huga
Í fráveitukerfi, þ.m.t. hreinsivirki á aðeins að fara piss, kúkur og klósettpappír.
Blautklútar og annað rusl á ekki að fara í klósettið, þó svo einhverjir framleiðendur slíkra vara láti í veðri vaka að slíkt sé í lagi.
Ef fjöldi notenda eða notkun fasteignar breytist getur þurft að hreinsa oftar eða endurskoða stærð hreinsivirkis. Heilbrigðisnefnd Austurlands getur veitt ráðgjöf um slík mál.
Heimildir og gagnlegir tenglar
HEF veitur: Hreinsun rotþróa í Múlaþingi
Gjaldskrá Múlaþings
Hafa samband við HEF
Leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar um litlar fráveitur