Fréttir

Endurnýjun hitaveitumæla á Egilsstöðum

Nú eru verktakar á vegum HEF veitna komnir af stað aftur í uppsetningu snjallmæla eftir nokkurt hlé. Næstu vikur verður farin önnur umferð um svæði 1, 2 og þrjú og bankað uppá hjá þeim sem ekki náðist í sl. vor. Mikilvægt er að aðgengi að hitaveitugrindum sé ávallt gott til að verkið gangi hnökralaust fyrir sig.

Leki í Fjarðargötu Seyðisfirði

Lokað er fyrir vatn í Fjarðargötu Seyðisfirði vegna vatnsleka. Sjá mynd með frétt. Unnið er að viðgerð, búist er við að henni ljúki á næstu klukkutímum.