20.10.2026
Vegna malbikunarframkvæmda verður Lagarfell í Fellabæ lokað á miðvikudag og fimmtudag eins og myndin sýnir. Fólki er bent á að aka Einhleyping á meðan framkvæmd stendur.
Íbúar á svæðinu eru hvattir til að gera ráðstafanir til að lágmarka umferð þessa daga. Þeir sem nauðsýnlega þurfa að komast eru beðnir um að aka varlega og sýna aðgát.
16.10.2026
Frétt Uppfærð 19 október kl. 11
Lokað verður fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu. Miðvikudaginn 21. október
Áætlað er að vatnið verði tekið af um kl. 10:00 og að það verði komið aftur á um kl. 18:00. Tímasetningar geta breyst ef eitthvað óvænt kemur upp.
15.10.2026
Vegna nýrrar tengingar í Hömrum þarf að loka fyrir vatn í Hömrum 8 - 23 á milli 14 og 16 í dag.
12.10.2026
Stefnt er á að bora holu í Bakkagerði innan við sparkhöllina. Íbúar eru beðnir velvirðingar á ónæðinu sem kann að hljótast af því. Nú standa yfir boranir í jarðhitaleitarátaki HEF veitna á Borgarfirði en stefnt er á að bora 5-6 hitastigulsholur í firðinum. Ein hola verður boruð við sparkhöllina í þorpinu og mun það valda einhverri hávaðamengun á meðan því stendur. Reiknað er með að hver hola taki 1-3 daga í borun.
05.10.2026
ATH vatnslaust vegna rosf í hluta Fellabæjar. Vegna tengivinnu þarf að loka fyrir kalt vatn í Ásbrún frá 11-12 í dag og í Selbrún og Dalbrún frá 15-18 síðar í dag. Beðist er velvirðingar á ónæðinu. Sjá mynd með frétt
15.09.2026
Vegna prófana á brunahönum og fleiru gæti orðið vart við truflanir í vatnsveitu Borgarfjarðar í dag, 15.09.26. Beðist er velvirðingar á ónæðinu.
11.09.2026
Vegna viðgerðar á leka á Múlavegi verður lokað fyrir kalt vatn í hluta Seyðisfjarðar, það er á Múlavegi, hluta Garðarsvegar, Botnahlíð, Brattahlíð, Lækjargötu, Vallargötu og Hlíðarvegi.
Lokað verður fyrir um kl 13 og fram eftir degi þar til viðgerðum líkur.
03.09.2026
Búið er að breyta gatnalokunum í Fellabæ þannig að nú er hægt að keyra Lagarfell en gatnamótin Lagarfell – Einhleypingur eru lokuð. Leiðin upp í Hvammana er því í gegnum Lagarfell núna.
27.08.2026
HAUST tók sýni á þriðjudaginn og standast þau gæðakröfur. Því er öllum kröfum um suðu á neysluvatni aflétt og fólki óhætt að neyta vatnsins sem áður. Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á neysluvatni á Borgarfirði eystra í síðustu viku greindust e.coli gerlar í sýninu.
26.08.2026
28.08.2026 - 08:45
Tengingu á nýrri stofnlögn í Ránargötu lauk um 4.30 í nótt
Vegna tengingar á nýrri stofnlögn í Ránargötu þarf að loka fyrir kalt vatn í hluta Seyðisfjarðar annað kvöld, Fimmtudag. Á mynd með fréttinni má sjá hvar verður vatnslaust.
Gert er ráð fyrir að tenging hefjist um kl. 22:00 og standi fram eftir nóttu.