kort af Fellabæ
Vegna malbikunarframkvæmda verður Lagarfell í Fellabæ lokað á miðvikudag og fimmtudag eins og myndin sýnir. Fólki er bent á að aka Einhleyping á meðan framkvæmd stendur.
Íbúar á svæðinu eru hvattir til að gera ráðstafanir til að lágmarka umferð þessa daga. Þeir sem nauðsýnlega þurfa að komast eru beðnir um að aka varlega og sýna aðgát.