Fréttir

Frestast til 23. júlí - Lokað fyrir heitt vatn í Fellabæ

Loka þarf fyrir heitt vatn í eftirfarandi götum í Fellabæ vegna framkvæmda.  Gert er ráð fyrir að vatnslaust verði frá kl 9 og fram eftir degi.  Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Íbúar og gestir eru beðnir um að fara sparlega með vatn á Hallormsstað.

Vegna mikillar veðurblíðu, sem sér ekki fyrir endann á, biðjum við íbúa og gesti að fara sparlega með vatn næstu dagana ef kostur er á. 

Lokað fyrir heitt vatn í Selbrekku

Lokað verður fyrir heitt vatn í Egilsseli, Klettaseli og Selbrekku á morgun þriðjudaginn 14.júlí frá kl 10-16 vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á trufluninni sem lokunin veldur.

Hamrabakki lokaður vegna framkvæmda

Hamrabakki verður lokaður frá kl.08.30 til 16.00 í dag 30.06.26 vegna framkvæmda.

Hreinsun rotþróa í Eiðaþinghá og Hjaltastaðaþinghá hefst mánudaginn 22. júní.

Vinna við hreinsun rotþróa í Eiðaþinghá og Hjaltastaðaþinghá hefst mánudaginn 22. júní.

Framkvæmd við Garðarsveg á mánudag og þriðjudag.

UPPFÆRT: 3.6.2026 - Vegna óvæntra tafa á verkinu verður Garðarsvegur lokaður á fimmtudag.  Sömu hjáleiðir og áður eru í gildi.  Vegna framkvæmda á gatnamótum Garðarsvegs og Lækjargötu á Seyðisfirði verður jarðvinna og tímabundin lokun á Garðarsvegi (sjá rautt á mynd) mánudag og þriðjudag 1-2. Júní. Íbúum og öðrum vegfarendum er bent á að nota hjáleið um Múlaveg á meðan lokun varir (gult á mynd).

Jarðhitaleit við Seyðisfjarðarkaupstað

Uppfært 27.5.2026: HEF veitur stefna á borun 400 m borholu við Dagmálalæk en markmiðið er að kanna dýpri jarðlög og vonast er eftir að finna varmagjafa fyrir miðlæga varmadælu fyrir kyndistöð fjarvarmaveitunnar. Undirbúningur hefst í vikunni en Borbræður munu koma með borinn sinn Árna í verkið. Borframkvæmdinni fylgir hávaði en gert er ráð fyrir að borun taki 2-4 vikur. Unnið verður frá 8-19 virka daga.

Framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Eiðum

Farið verður í framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Eiðum á miðvikudagskvöldinu 27. maí milli 23:00 og 08:00 morguninn eftir. Það er fyrirséð að það verði truflanir á afhendingu á neysluvatni á Eiðum á meðan þessu stendur.

Uppfært 20.05 - Truflanir á afhendingu á heitu vatni á Seyðisfirði fimmtudaginn 21. maí

Vegna lekaviðgerðar verða truflanir á afhendingu á heitu vatni á Seyðisfirði þriðjudaginn 21. maí frá kl. 10 og frameftir degi

Vatnsveitan Hallormsstað rafmagnslaus

Upplýsingar vegna bilunar í rafstreng að dælu og miðlunartanki ofan Hjalla