Lokað fyrir kalt vatn á Seyðisfyrði á Fimmtudagskvöld

Kort af Seyðisfirði
Kort af Seyðisfirði

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn í Ránargötu þarf að loka fyrir kalt vatn í hluta Seyðisfjarðar annað kvöld, Fimmtudag. Á mynd með fréttinni má sjá hvar verður vatnslaust.
Gert er ráð fyrir að tenging hefjist um kl. 22:00 og standi fram eftir nóttu.

Nýja stofnlögnin leysir af hólmi eldri stofnlögn sem komin er til ára sinna. Einnig gerir hún vatnsveituna betur í stakk búna til að sinna nýju hlutverki svæðistinns.

Send verða SMS á símanúmer sem skráð eru innan áhrifasvæðis.  Þau sem fá ekki skilaboð en hafa búsetu, reka fyrirtæki eða annað innan svæðisins geta skráð númerið sitt hér til að komast tilkynningalista HEF veitna.   SMS við þjónusturof | HEF veitur