Truflanir á afhendingu á köldu vatni á Borgarfirði næstkomandi mánudag.

Borgarfjörður
Borgarfjörður

Vegna vinnu við nýja stofnlögn má gera ráð fyrir að truflanir verði á afhendingu á köldu vatni næstkomandi mánudag, 24. ágúst. Þetta getur verið allt frá litlum þrístingi og upp í algert vatnsleysi um tíma. Vinna hefst um kl 10 og stendur allan daginn.

Réttarholt, Háteigur, Rafstöð Rarik, Ásgarður, Þórshamar og Vinaminni verða líklega alveg vatnslaus á meðan vinnunni stendur.

Þessi vinna er hluti af endurnýjun vatnslagna í þorpinu og endurbótum á tæknirými við vatnstankinn sem staðið hafa yfir undanfarin ár.

Einnig er unnið að því að flýta tengingu á gegnumlýsingartæki sem er hluti af endurnýjuninni við dreifikerfið.

Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta mun valda þorpsbúum og gestum.

Þeim húseigendum sem ekki fengu SMS tilkynningu er bent á að skrá símanúmerið sitt við viðkomandi heimilisfang.

SMS við þjónusturof | HEF veitur