Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á neysluvatni á Borgarfirði eystra í síðustu viku greindust e.coli gerlar í sýninu. Að svo stöddu er ekki ljóst hvað veldur menguninni en talið er að náttúrulegt smit hafi komist í brunna.
Þeim tilmælum er beint til íbúa að sjóða neysluvatn fyrir neyslu. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa s.s. til baða þar sem fjöldi gerlanna var innan þeirra marka, sem miðað er við að megi vera í baðvatni í náttúrunni.
Leiðiningar um suðu á neysluvatni
Framkvæmdir standa nú yfir á vatnsveitu Borgarfjarðar sem miða einmitt að uppsetningu á gegnumlýsingartæki fyrir vatnsveituna sem ætlað er að koma í veg fyrir mengun sem þessa, en þeim er ekki lokið. Lagt verður kapp á að koma gegnumlýsingartæki í gagnið en ekki er ljóst hvort það næst í vikunni.
Frekari sýnatökur verða gerðar í vikunni og fréttin verður uppfært þegar niðurstöður berast.