Borað var niður í 390 m fyrir helgi og ákværðun tekin að hitamæla holuna. Því var borstrengurinn dreginn upp í gær og hitamæling gerð í dag. Ef hitamæling styður ekki við áframhaldandi borun verður látið staðar numið hér en þó verður dælupróf framkvæmt hvað sem öðru líður og þá munu gæði holunnar afhjúpast betur.
Borun gengur áfram vel og var 300 m múrinn rofinn í gær. Gert er ráð fyrir að komist verði í 400 m skömmu eftir helgi. Þá verður holan hitamæld.
Tíðindalítið hefur verið frá því fyrir helgi en borinn er í 174 m í dag og nokkuð vatn í holunni þó engar áberandi æðar hafi komið fram.
Borun heldur áfram og var 100 m múrinn rofinn í dag. Ekki mikið van á ferðinni í berggrunninum enn sem komið og borun gengur vel. Útlit fyrir að 200 m múrinn verði rofinn fyrir helgi.
Borun er hafin á Seyðisfirði en Borbræður fluttu borinn Árna yfir heiðina fyrir helgi. Þeir hófust handa við að koma fóðringum niður í gær og gekk það vel. Komið var á fast berg á 27 m dýpi en nokkuð vatnsmagn var á ferðinni í malarlagi þar fyrir ofan. Þó er það ekki sama vatnið og við leitum af núna því við könnum nú berggrunninn og vatn sem kemur úr djúpinu. Borun heldur áfram en síðasta fóðringin fer niður í dag og í framhaldinu hefst borun með lofthamri.

Borun fyrstu metranna í gangi.
Borplanið var klárað fyrir helgi og Borbræður munu fara að koma sér fyrir á næstu dögum. Útlit fyrir að borun hefjist í vikunni.
HEF veitur tóku við fjarvarmaveitunni á Seyðisfirði í byrjun árs 2025 frá RARIK. Lítli nýsköpun hefur átt sér stað í fjarvarmaveitunni frá upphafi og viðhaldi lítið sinnt. HEF veitur standa því frammi fyrir því verkefni að taka reksturinn alveg í gegn. Það felst meðal annars í því að bylta kyndingunni í fjarvarmaveitunni. Til stendur að setja upp miðlæga varmadælu en til þess vantar varmagjafa. Engan augljósan kost er að finna í þeim efnum, en andrúmsloft kemur til greina ásamt jarðhita. Enginn hefðbundinn jarðhiti hefur fundist á Seyðisfirði en þó er nokkuð mikil velgja í kringum kaupstaðinn (hitastigull er 90-100°C/km, nokkuð hærri hitastigull en bakgrunnsgildi 50-60°C/km). HEF veitur fengu veglega styrki til að setja upp varmadælu á Seyðisfirði, en einnig til jarðhitaleitar. HEF boraði eina holu (SEY-26) undir Nautakleif síðastliðið vor en nú stendur til að halda áfram.
Nú stendur til að kanna svo hvort finna megi einhverja velgju og vatnslekt með dýpri borholu á því svæði. Ljóst er að þessi borun gæti orðið afar þýðingamikil fyrir kyndistöð fjarvarmaveitunnar en unnið er að því að bylta rekstri hennar. Enginn góður varmagjafi er til staðar í Seyðisfirði og því gæti jafnvel volg vatn haft mikla þýðingu fyrir varmadælu í kyndistöðinni.
Valinn hefur verið staður fyrir borholu skammt frá dagmálalæk fyrir neðan skógræktarsvæði Skógræktarfélagsins. 
Stefnt er á að bora 400 m rannsóknarholu en dýpstu holurnar í firðinum eru 200 m djúpar. Hitastigull í Seyðisfirði er víða í kringum 90-100°C/km og einnig í kringum þéttbýlið. Undirbúningur á svæðinu hefst í vikunni en efni verður borið í slóða og borplan undir bortækin. Borbræður koma svo með borinn sinn Árna þegar undirbúningi er lokið. Borframkvæmdin sjálf myndi taka 2-4 vikur. Framkvæmdinni fylgir tilheyrandi hávaði á svæðinu og nokkur fjöldi vinnuvéla og tækja fylgir framkvæmdinni. Unnið verður að borun milli 8 og 19 virka daga. HAUST hefur verið látið vita af framkvæmdinni. Framkvæmdin mun valda truflun á frisbígolfvellinum á meðan framkvæmdatíma stendur. Vonir standa til þess að nýta megi þessa holu til öflunar varma til varmadælu. Hitamælingar og dælupróf verða framkvæmd í holunni að borun lokinni. Í framhaldinu kemur til greina að fá að bora fleiri sambærilegar holur í kaupstaðnum. Ef mælingar gefa til kynna að nýta megi holuna sem varmagjafa fyrir miðlæga varmadælu verður unnið að því að virkja hana með því að leggja lagnir frá henni í kyndistöðina og setja upp dælu og brunn eða lítinn kofa yfir holuna.
Fréttin verður uppfærð þegar verkinu vindur fram.