Ákveðið hefur verið að fresta aðgerðum um einn dag. Nú er stefnt á að tæma og þrífa tankinn á miðvikudagskvöldi 27. maí frá kl 23:00 til kl 08:00 morguninn eftir. Tankbíll verður á staðnum og getur staðið undir lágmarks afhendingu á vatni en ljóst er að einhver skerðing verður á afhendingu.
Farið verður í framkvæmdir og þrif á vatnstankinum á Eiðum á Þriðjudagskvöldinu 26. maí milli 22:00 og 08:00 morguninn eftir. Tankurinn verður tæmdur, þrifinn að innan og ýmsar endurbætur gerðar bæði á tankinum og tæknirými. Því er fyrirséð að það verði vatnslaust á Eiðum á meðan þessu stendur. Við biðjum íbúa og gesti afsökunar á óþægindunum.
Í framhaldinu verður farið í fleiri aðgerðir í vatnstankinum og tæknirýminu sem kunnu að valda truflunum á afhendingu um skamma stund næstu vikur á eftir.