Uppfært 23:40
Viðgerð á rafmagnsheimtaug er lokið og keyrslu á varaafli hætt. Nóttin fer svo í að fylla á vatnsbirgðirnar.
Ef frekari upplýsinga er þörf má hafa samband við okkur í síma 4 700 780 eða á hef@hef.is
Uppfært 19:07
Búið er að tengja varaafl og vatn er farið að renna í tankinn. Tankurinn var orðinn tómur þannig að það mun taka einhverja stund þar til vatn fer að flæða til notenda.
Gera má ráð fyrir að loft hafi komist í kerfið og eru notendur því beðnir um að skrúfa varlega frá krönum.
Notendur eru beðnir að fara sparlega með vatn fram eftir kvöldi.
---------------------------------------------------------------
Bilun er í rafstreng að vatnsveitunni ofan Hjalla, sem þjónar Hallormsstað.
Bilanaleit stendur yfir, samhliða því að unnið er að því að tengja dælu og tank við varaafl.
Notendur vinsamlega beðnir að spara vatnið, en lítið er orðið í tanknum, en dugar vonandi eitthvað fram á kvöldið.
HEF veitur biðjast velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Starfsfólk HEF veitna.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem fram vindur.