Uppfært kl. 23:00
Viðgerð gekk vel og við erum byrjuð að hleypa vatni á lögnina. Það getur tekið einhverja stund að ná upp fullum þrýstingi hjá öllum.
Uppfært kl. 21:10
Nú er ljóst að viðgerð mun taka einhverjar klukkustundir og vatn kemst ekki á fyrr en í nótt.
Uppfært kl. 19:50
Búið er að koma á bráðabyrgðatengingu á hluta Norðurgötu. Enn er verið að grafa niður á lögnina til að staðsetja lekann og sjá hversu alvarleg bilunin er.
Uppfært 29.07 kl. 18:20
Því miður gaf stofnlögnin sig aftur á svipuðum stað og í gær. Unnið er að undirbúningi að viðgerð
Uppfært 28.07
Viðgerð lauk og vatni var hleipt á um kl. 1:30 í nótt. Stór Stofnlögn fór í sundur í Ránargötu og var viðgerð á henni nokkur áskorun. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem vatnsleysið olli og þökkum notendum þolinmæðina.
Uppfært kl. 15:20
Nú er ljóst að vatnsleysi á því svæði sem nú er vatnslaust muni vara fram eftir kvöldi. Verið er að reyna að koma á bráðabyrgðatengingu á hluta Norðurgötu en ekki verður hægt að lofa fullum þrýstingi þar.
---------------------------------------------------------
Nú í morgun rofnaði lögn við Ránargötu á Seyðisfirði með þeim afleiðingum að vatnsþrýstingur féll í dreifikerfinu og ljóst að vatnslaust er í stórum hluta bæjarins.
Starfsmenn keppast við að einangra lekann og koma viðgerð af stað. Búast má við að truflanir verði á afhendingu fram eftir degi, misjafnt eftir hverfum.