Vatnslögn fór í sundur í Hömrum á Djúpavogi fyrir skemmstu og loka þurfti fyrir vatn í alla götunna vegna þess. Unnið er að viðgerð en vatn kemur ekki á aftur fyrr en að viðgerð lokinni.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.
Uppfært 26.06.25
Viðgerð lauk kl 16:30 og vatni hleypt á í kjölfarið.