Tæknirými vatnsveitu á Borgarfirði - Verðkönnun

Neysluvatnstankur Borgarfjarðar.
Neysluvatnstankur Borgarfjarðar.

HEF veitur  auglýsa verðkönnun fyrir endurnýjun tæknirýmis og klæðningu neysluvatnstanks á Bakkamel á Borgarfirði eystra.

Neysluvatnstankurinn er um 59 m² að gólffleti, og upp við tankinn er nú 4 tæknirými.

Verkið felur m.a. í sér:

  • Niðurrif á núverandi tæknirými niður að plötu
  • Jarðvinnu og undirbúning fyrir nýtt tæknirými (um 17,6 m² gólfflötur), steyptar undirstöður og einangrun
  • Uppsetningu útveggja fyrir nýtt tæknirými
  • Frágangur
  • Klæðningu neysluvatnstanks að utan (um  95 m²)

 

Verktakar sem hafa áhuga á að taka að sér verkið geta sent beiðni á hef@hef.is og óskað eftir gögnum frá og með mánudeginum 11. ágúst.
 
Óskað er eftir verðum fyrir 20. ágúst 2025 kl 14:00.
 

HEF veitur áskilja sér rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.