Frá og með miðvikudeginum 4. júní til og með föstudagsins 6. júní verður unnið að lekaleit í hitaveitukerfinu á Seyðisfirði. Af þeim sökum má búast við truflunum og mögulegri skerðingu á afhendingu heits vatns í öllum bænum á þessum tíma.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.