HEF veitur bjóða húseigendum á köldum svæðum í Múlaþingi ráðgjafarþjónustu varðandi uppsetningu varmadælukerfa. Ráðgjöfin fer fram á heimili íbúa, þar sem möguleikar til varmadæluuppsetningar eru metnir ásamt því að áætla stærð dælu. Þá hafa húseigendur beint aðgengi að sérfræðingum sem eru reiðubúnir að svara spurningum og kynna möguleika.
Þjónustan er ætluð íbúum utan þjónustusvæðis HEF veitna þar sem ekki er mögulegt að hita híbýli með heitu vatni. Af þeim sökum verða heimsóknir ekki í boði í þéttbýli á Djúpavogi, þar sem jarðhitaleit stendur yfir, eða á Seyðisfirði þar sem HEF rekur fjarvarmaveitu. Á Borgarfirði eystra er stefnt á borun hitastigulshola í sumar og í framhaldi af þeim rannsóknum skýrist hvaða möguleikar verða til varmadæluvæðingar í þéttbýlinu.
Heimsóknir verða skipulagðar á vormánuðum 2026 og haft verður samband við þá aðila sem hafa skráð sig á lista hjá HEF.
Ráðfjafarþjónustan er húseigendum að kostnaðarlausu.
Mikilvægt er að húseigendur skrái sig sem allra fyrst, eða fyrir 20. apríl 2026, svo samfella geti orðið í heimsóknum ráðgjafa.
Skráning fer fram hér en einnig er velkomið að hafa samband við HEF veitur í gegnum síma 4 700 780 eða með því að senda tölvupóst á hef@hef.is.