Ágætu viðskiptavinir hitaveitu HEF veitna á Egilsstöðum og nágrenni.
Við uppfærslu bókhaldskerfis veitunnar um mánaðamót október-nóvember s.l. urðu þau leiðu mistök að rúmmetraverð heita vatnsins færðist ekki rétt. Reikningar fyrir notkun í nóvember og desember reiknaðist á röngu, of lágu, verði sem nemur 23-24,6 kr/m3.
Þið megið því búast við leiðréttingarreikningum á allra næstu dögum.
HEF veitur harma þessi mistök og biðjast velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Starfsfólk HEF veitna