Vegna mikillar veðurblíðu, sem sér ekki fyrir endann á, dvelja margir í Hallormsstað þessa dagana. Mikið álag er því á vatnsveitunni á Hallormsstað. Brunndælur eru því farnar að erfiða við að standa undir eftirspurninni. Því biðjum við íbúa og gesti að fara sparlega með vatn næstu dagana ef kostur er á.
HEF veitur biðjast velvirðingar á þessu og þakka skilning.