Hreinsun rotþróa í Múlaþingi

Huga þarf reglulega að ástandi í rotþróm.
Huga þarf reglulega að ástandi í rotþróm.

Að gefnu tilefni eru húseigendur, eigendur hreinsivirkja, minntir á að fylgjast með ástandi fráveitukerfa sinna.

Í desember 2023 var Samþykkt um fráveitur í Múlaþingi (nr. 1401/2023) breytt á þann veg að reglulegum tæmingum var fækkað úr því að hafa verið 2. hvert ár í að verða 3. hvert ár. 

Þetta hefur í flestum tilfellum gengið hnökralaust, en nú hefur borið á því að rotþrær fyllast og hafa af því hlotist vandræði og fjárhagstjón.

Rotþrær og hreinsivirki í dreifbýli eru nær undantekningarlaust í eigu landeigenda  / húseigenda og ber þeim að fylgjast með ástandi þeirra og óska eftir aukahreinsun gerist þess þörf.

Þá er ástæða til að benda á að ef notendafjöldi eða notkun fráveitukerfa breytist getur verið nauðsynlegt að stækka hreinsivirki, eða fjölga hreinsunum.  Heilbrigðisnefnd Austurlands er til ráðgjafar í þeim efnum.

Þessu til viðbótar er minnt á að í fráveitukerfi á bara að fara piss, kúkur og klósettpappír.