Hreinsun rotþróa í Eiðaþinghá og Hjaltastaðaþinghá hefst mánudaginn 22. júní.

Rotþróabíll að störfum
Rotþróabíll að störfum

Vinna við reglulega hreinsun rotþróa í Eiðaþinghá og Hjaltastaðaþinghá hefst mánudaginn 22. júní.

HEF veitur standa fyrir losun á 3ja ára fresti. Þessi losun gjaldfærist samkvæmt gjaldskrá HEF veitna.

Komi til þess að hreinsa þurfi rotþrær utan reglulegar hreinsunar ber viðkomandi kostnað af henni.

Mikilvægt er fyrir eigendur rotþróa að huga að eftirfarandi þáttum:

  • Læst hlið á þeim svæðum sem tæma á verða að vera ólæst, þannig að þjónustuaðili komist óhindrað að rotþróm.
  • Rotþrær þurfa að vera aðgengilegar hreinsibíl og vel sýnilegar / merktar.

Nánari upplýsingar má fá í síma 4 700 780 eða með því að senda póst á netfangið hef@hef.is

Starfsfólk HEF og Hreinsitækni.