Framkvæmdir við endurnýjun gatna og veitulagna í Markarlandi á Djúpavogi

Mynd tekin á Djúpavogi.
Mynd tekin á Djúpavogi.

HEF veitur, í samstarfi við Múlaþing og Rarik, eru að hefja umfangsmiklar framkvæmdir við endurbyggingu og endurnýjun á götum og veitulögnum í Markarlandi á Djúpavogi. 

Framkvæmdir hefjast á svæðinu við Búland og Bakka og verða unnar í áföngum með það að markmiði að lágmarka rask og óþægindi fyrir íbúa og aðra vegfarendur.

Á framkvæmdatíma má búast við tímabundnum þrengingum og lokunum á viðkomandi götum. Leitast verður við að halda aðgengi sem greiðustu á hverjum tíma og upplýsa íbúa reglulega um framvindu verksins.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok júlí.

 

Eftirfarandi teikning sýnir verksvæðið merkt inn með rauðum ramma.

Ef vakna spurningar er íbúum bent á að hafa samband við HEF í síma 4 700 780 á opnunartíma skrifstofunnar eða með því að senda tölvupóst á hef@hef.is.