Átak í uppsetningu snjallmæla á Egilsstöðum

Snjallmælar eru af gerðinni Engelmann Sensostar U.
Snjallmælar eru af gerðinni Engelmann Sensostar U.

Á næstu dögum hefst átak í uppsetningu snjallmæla á Egilsstöðum, þar sem eldri hitaveitumælum er skipt út fyrir snjallmæla. Bænum er skipt upp í svæði og verður haft samband við íbúa þeirra svæða sem eru næst á dagskrá.

Píparar á vegum HEF veitna munu hafa samband við íbúa á Egilsstöðum og nágrenni til að skipuleggja heimsóknir. Mikilvægt er að greiður aðgangur sé að hitaveitugrindum og að aðstæður til vinnu séu viðunandi, þannig að framkvæmdin geti gengið hnökralaust fyrir sig.

Með innleiðingu snjallmæla verður unnt að afla nákvæmra upplýsinga um orkunotkun, byggt á mælingum á magni og hitastigi vatns inn og út úr fasteignum. Gögnin berast sjálfkrafa í kerfi HEF veitna, sem eykur yfirsýn og rekstraröryggi og gerir mögulegt að greina og bregðast tímanlega við frávikum.

Jafnframt, þegar snjallmælavæðingu á svæðinu lýkur, fellur niður þörf á handvirkum álestri og áætlaðri reikningagerð. Viðskiptavinir munu í staðinn greiða fyrir raunverulega orkunotkun samkvæmt mælingum.

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari upplýsingum eru íbúar hvattir til að hafa samband við HEF veitur í síma 4 700 780 eða með því að senda e-mail á hef@hef.is.