Uppsetning snjallmæla á Egilsstöðum

Engelmann orkumælir

HEF veitur standa nú fyrir uppsetningu næstu kynslóð hitaveitumæla á Egilsstöðum.  Stefnt er að því að skipta út öllum mælum á næstu mánuðum.  Hér fyrir neðan má finna helstu upplýsingar um verkefnið og gang mála.

Svæði í vinnslu:

Svæði 1 - Selbrekka

Hér má sjá svæðaskiptingu verkefnisins




Fyrir uppsetningu

Hvenær fæ ég snjallmæli

Að skipta út öllum hitaveitumælum mun taka talsverðan tíma.  Búið er að skipta bænum upp í svæði og verða þau tekin í þeirri röð sem þau eru merkt. Hér efst á síðunni er hægt að sjá á hvaða svæði er verið að vinna .  Útskipting á mælinum sjálfum er húseiganda að kostnaðarlausu.

Hér má sjá svæðaskiptingu verkefnisins

Hvernig náum við í ykkur?

Mikilvægt að við getum náð í viðskiptavini til að plana heimsókn og koma upplýsingum til skila ef þess gerist þörf.

Gott er ef húsráðandi geti sett inn tengiliðaupplýsingar og hvenær á deginum hentar best að taka á móti okkur með því að fylla út formið hér fyrir neðan

Eyðublað hér

Hvað þarf að gera áður en við mætum og hvernig fara skiptin fram?

Mikilvægt er að tryggja aðgengi að hitaveitugrind og mæli þannig að verkið gangi hnökralaust fyrir sig.

Aðilar á vegum HEF veitna vinna verkið og verða þeir merktir með hálsbandi og spjaldi með merki HEF veitna

Heitt vatn verður tekið af húsinu á meðan skiptin fara fram og þarf húseigandi að gera ráðstafanir vegna þess ef þess gerist þörf.

Ef þú býrð í sérbýli er nauðsynlegt að lögráða aðili verði heima á meðan skiptin fara fram.

 

Þegar uppsetningu er lokið

Hver er breytingin?

Með innleiðingu snjallmæla verður unnt að afla nákvæmra upplýsinga um orkunotkun, byggt á mælingum á magni og hitastigi vatns inn og út úr fasteignum. Gögnin berast sjálfkrafa í kerfi HEF veitna, sem eykur yfirsýn og rekstraröryggi og gerir mögulegt að greina og bregðast tímanlega við frávikum.

Með rauntímagögnum verður líka mögulegt að gjaldfæra í rauntíma í stað áætlunar í dag.

Hvað verður um gamla mælinn?

Í gömlu mælunum eru bæði málmar og plast sem hægt er að endurvinna.

Hvaða gögnum er hægt að safna um mig og orkunotkun mína með snjallmælunum?

Gögnin segja til um hversu mikið heitt vatn er notað og hvenær.  Mæligögnin segja ekkert um hvernig eða í hvað vatnið er notað.  Einungis hversu mikið er notað og hvenær.  Einnig er hægt að sjá hversu heitt vatn notandi fær inn til sín og hversu heitu hann skilar frá sér.

HEF veitur hefur aðgang að þessum gögnum og mun ekki gefa þriðja aðila upplýsingar um þau.

Hvernig ferðast gögnin?

Mælarnir nýta LoRa tækni til að senda gögn til veitunar.  Í mælunum er rafhlaða sem endist í u.þ.b 10 ár svo að engin þörf er á að notandi þurfi að útvega netsamband eða rafmagn.

Mælirinn sendir frá sér gögn í mjög stutta stund með u.þ.b. klukkustunda millibili.  Mælirinn sendir einungis gögn en móttekur ekki.
Samkvæmt framleiðanda mælana er hámarks sendistyrkurinn um 14 dBm við 868 MHz.  Það gerir u.þ.b. 25mW.  Til samanburðar er tæki sem nýtir Wifi eða 5G samskipti um 200 mW og senda þau og móttaka merki í talsvert lengri tíma í einu.

Nánari upplýsingar má finna á vef Geislavarna ríkisins.