Egilsstaðir
Nauðsynlegt er að lesa af hitaveitumælum að lágmarki einu sinni á ári til að hægt sé að uppfæra áætlun um notkun. Eins þarf að lesa af þegar tilkynnt er um flutning.
Álestur fer fram á Mínum síðum hér á hef.is
Eftir að búið er að skrá sig inn með rafrænum skilríkum er farið í notkun og álestrar, Valið rétt heimilisfang eða mælir og staðan skráð (Uppgjörsálestur). Við mælum líka með að taka mynd af stöðunni og senda með. Að lokum er staðan send inn með að velja skrá álestur. Nánari leiðbeiningar má finna hér
Ef eitthvað er óljóst er alltaf hægt að senda okkur póst á hef@hef.is eða hringja í 4700780 á opnunartíma HEF veitna.
Seyðisfjörður
Nauðsynlegt er að lesa af varmamælum að lágmarki einu sinni á ári til að hægt sé að uppfæra áætlun um notkun. Eins þarf að lesa af þegar tilkynnt er um flutning eða umtalsverðar breytingar verða á notkunarmynstri.
Álestur fer fram með því að fylla út eyðublaðið hér.
Álestri er einnig hægt að skila inn á netfangið: hef@hef.is eða með því að hringja í síma 4700780.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við innsendingu:
- staðsetning mælis (heimilisfang)
- númer mælis
- staða mælis í kWh
- staða mælis i m³
- tengiliða upplýsingar (netfang eða símanúmer)
- ekki er verra að senda með myndir að mælinum þar sem stöðurnar og upplýsingar um mælinn sjást vel.
Nánari leiðbeiningar varðandi álestur varmamæla má finna hér
Ef eitthvað er óljóst er alltaf hægt að senda okkur póst á hef@hef.is eða hringja í 4 700 780 á opnunartíma HEF veitna.