Ekki þarf lengur að sjóða neysluvatn á Seyðisfirði

Seyðisfjörður
Seyðisfjörður

Nýjustu niðurstöður sýnatöku sýna að engin mengun er lengur í vatnsveitu Seyðisfjarðar.  Íbúar þurfa því ekki lengur að sjóða vatn til neyslu.
HEF veitur þakka íbúum fyrir sýnda þolinmæði.  Nú verður farið yfir stöðuna og metnar þarfir á úrbætum til að lágmarka hættu á mengun.